Samþykktir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
1. Markmið og hlutverk
1.1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, skammstafað HES, er byggðasamlag sveitarfélaga í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Heimili þess og varnarþing er Austurvegi 56 Selfossi.
Starfsemi og hlutverk HES skal vera í samræmi við ákvæði laga nr.7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heilbrigðisnefnd Suðurlands sem fer með yfirstjórn HES ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast um framkvæmd á. Nefndin skal vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum.
2. Um aðalfund
2.1
Aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands skal halda fyrir lok októbermánaðar ár hvert á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Á kosningaári sveitarstjórna skal halda hann að loknum kosningum en þó eigi síðar en 15. september. Yfirumsjón og formlegur undirbúningur ársþings er í höndum stjórnar SASS.
2.2
Félagafund skal boða ef þörf krefur að mati heilbrigðisnefndar eða ef þriðjungur aðildarsveitarfélaga krefst þess skriflega. Sömu reglur gilda um þá og reglulega aðalfundi.
2.3
Heilbrigðisnefnd Suðurlands semur dagskrá aðalfundar og skal hún send aðalfundarfulltrúum eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfundinn og skulu aðildarsveitarfélög hafa tilkynnt um fulltrúa á aðalfund fyrir þann tíma. Með aðalfundarboði skal senda tillögu að fjárhagsáætlun næsta árs, endurskoðaða ársreikninga, ársskýrslu heilbrigðisnefndarinnar, tillögur nefndarinnar og tillögur sem borist hafa frá aðildarsveitarfélögunum.
2.4
Aðalfundur mótar stefnu Heilbrigðiseftirlitsins, að öðru leyti en tilskilið er í lögum, og ákveður hvaða mál skuli lögð mest áhersla á fram að næsta aðalfundi. Á aðalfundi er afgreidd skýrsla um liðið starfsár, endurskoðaðir reikningar og tillaga að fjárhagsáætlun og gjaldskrá fyrir næsta ár.
2.5
Tillögur og ályktanir sem hljóta eiga afgreiðslu á aðalfundi skal senda heilbrigðisnefndinni 3 vikum fyrir aðalfund.
3. Um kosningar til aðalfundar
3.1
Á aðalfundi Heilbrigðieftirlits Suðurlands eiga sæti:
a. Einn fulltrúi fyrir sveitarfélag sem hefur 200 íbúa eða færri.
b. Tveir fulltrúar fyrir sveitarfélag sem hefur 201 til 500 íbúa.
c. Þrír fulltrúar fyrir sveitarfélag sem hefur 501 til 1000 íbúa
d. Sveitarfélag með yfir 1000 íbúa skal auk þess fá einn fulltrúa fyrir hvert byrjað þúsund íbúa.
e. Heilbrigðisnefndarmenn og framkvæmdastjórar aðildarsveitarfélaga með málfrelsi og tillögurétti séu þeir ekki kjörnir fulltrúar
Miða skal við íbúafjölda sveitarfélags þann 1. desember næstliðins árs.
3.2
Kjörgengir á aðalfund eru framkvæmdastjórar sveitarfélaga, sveitarstjórnarmenn og varamenn þeirra. Sveitarstjórnarmaður missir kjörgengi sitt á næsta aðalfundi eftir að hann hættir setu í sveitarstjórn.
3.3
Aðalfundurinn er opinn öllum sveitarstjórnarmönnum aðildarsveitarfélaganna sem áheyrnarfulltrúum.
4. Um kosningar á aðalfundi
4.1
Á aðalfundi ræður einfaldur meiri hluti atkvæða. Samþykktum byggðasamlagsins verður þó aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta aðildarsveitarfélaga.
4.2
Á aðalfundi í kjölfar sveitarstjórnarkosninga skulu 5 kosnir í Heilbrigðisnefnd til 4 ára, í samræmi við ákvæði 11. gr. laga um hollustuhætti nr. 7/1998.
4.3
Aðalfundur skal kjósa tvo skoðunarmenn ársreikninga og tvo til vara. Skulu þeir yfirfara og árita ársreikninga Heilbrigðiseftirlitsins.
4.4
Aðalfundur kýs starfsnefndir fundarins og menn í starfsnefndir sem starfa að ákveðnum málefnum milli funda, samkvæmt sérstakri samþykkt aðalfundarins.
4.5
Fundargerðir og fundarsamþykktir aðalfundar skal færa í sérstaka gerðabók og jafnframt gerð grein fyrir öðru því sem gerist á aðalfundi. Fundargerð skal lesin upp í fundarlok og borin undir atkvæði ef þess er kostur en heimilt er að fela fundarstjóra og fundarritara að ganga frá fundargerðinni. Setja skal HES sérstök aðalfundarsköp sem aðalfundur þarf að samþykkja.
5. Um stjórn og starfslið
5.1
Heilbrigðisnefnd Suðurlands er málsvari HES á milli aðalfunda og fylgir fram samþykktum nefndarfunda og aðalfundar. Heilbrigðisnefndin vinnur að stefnumarkandi málum og gerir tillögur um ný mál er leggja skal fyrir aðalfund til ákvörðunar. Heilbrigðisnefndin fer jafnframt með yfirstjórn á rekstri HES faglega og ber ábyrgð á að rekstur sé innan þeirra fjárheimilda sem aðalfundur HES hefur samþykkt.
5.2
Heilbrigðisnefndarfundi skal halda eftir þörfum en eigi sjaldnar en 6 sinnum á ári og er nefndarfundur lögmætur sé meiri hluti nefndarinnar mættur.
5.3
Heilbrigðisnefnd ræður framkvæmdastjóra til fimm ára, markar starfssvið hans og launakjör og gerir við hann skriflegan ráðningarsamning og skal ráðning hans miðuð við áramót. Aðra starfsmenn ræður framkvæmdastjóri. Heimild nefndarinnar þarf að liggja fyrir, ef um fjölgun stöðugilda er að ræða. Um starfskjör starfsmanna HES fer samkvæmt ákvæðum kjarasamninga og ráðningarsamnings. Allar ráðningar skulu vera innan ramma markaðrar sameiginlegrar launa- og starfsmannastefnu, sbr. grein 5.6.
5.4
Framkvæmdastjóri veitir Heilbrigðiseftirliti Suðurlands forstöðu og annast framkvæmd málefna eftir því sem heilbrigðisnefnd ákveður og hefur á hendi, fjármálastjórn og starfsmannastjórn. Framkvæmdastjóri á sæti á aðalfundi og heilbrigðisnefndarfundum.
5.5
Framkvæmdastjóri skal að jafnaði boða heilbrigðisnefndarfundi í samráði við formann nefndarinnar. Telji formaður stjórnar að óeðlilegur dráttur sé á fundarboðun, getur hann hlutast til um fundarboðunina. Framkvæmdastjóra er skylt að leggja fyrir heilbrigðisnefnd öll meiri háttar erindi og nýmæli.
5.6
Starfsmanna- og launastefna er sameiginleg með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, Sorpstöð Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands. Umsjón og þróun launa- og starfsmannastefnunnar er í höndum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í samráði við stjórnir viðkomandi samlaga. Framkvæmdastjóri HES ber ábyrgð á að sameiginlegri starfsmanna- og launastefnu verði fylgt. Sértæk starfsmannastefna, sem snýr að fagsviði HES skal unnin og staðfest af heilbrigðisnefndinni telji hún þörf á slíkri stefnu.
6. Um árgjöld
6.1
Við kostnaðarskiptingu skal miða við að allar tekjur af eftirlitsskyldri starfsemi á svæðinu renni í sameiginlegan sjóð til greiðslu rekstrarkostnaðar heilbrigðiseftirlits á svæðinu. Sá kostnaður sem eftirlitsgjöld standa ekki undir greiðist af aðildarsveitarfélögunum í samræmi við íbúafjölda næstliðins árs.
7. Um úrsögn og slit
7.1
Byggðasamlagið verður ekki lagt niður nema tveir löglega boðaðir fundir samþykki það með 2/3 hluta atkvæða. Fundirnir skulu haldnir með a.m.k. tveggja mánaða millibili. Tillaga að félagsslitum skal fylgja fundarboði. Áður en seinni fundurinn er haldinn skal afstaða aðildarsveitarfélaga til félagsslitanna liggja fyrir. Til þess að slit á byggðasamlaginu nái fram að ganga þurfa 2/3 hlutar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga að staðfesta þau.
8. Um breytingar á samþykktum og gildistökuákvæði
8.1
Breyta má samþykktum þessum á aðalfundi ár hvert og skulu tillögur um breytingar á samþykktum fylgja fundarboði. Tillögur til breytinga á samþykktum skulu sendar heilbrigðisnefndinni þremur vikum fyrir aðalfund.
8.2
Breyting á samþykktum telst samþykkt, ef hún nýtur stuðnings 2/3 hluta aðildarsveitarfélaga á lögmætum aðalfundi.
8.3
Samþykktir þessar öðlast gildi við samþykki þeirra.
Þannig samþykkt á aukaaðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 26. apríl 2006.
